Endurbæta gönguleiðir í Listagilinu
Framkvæmdir eru hafnar við endurbætur á gönguleiðum í Listagilinu. Endurgera á alla gangstéttina sunnan megin, frá gatnamótum Eyrarlandsvegar og niður að torginu fyrir framan hótel KEA. Þetta kemur fram á heimasíðu Akureyrarbæjar. Jafnframt segir þar að í leiðinni verði torgið sjálft endurbætt. „Skipt verður um allar hellur og horft til þess að gera gönguleið yfir torgið skýrari og aðgengilegri. Auk þess verða eyjur hellulagðar ofan á torgið til að gera akstursleið skýrari og draga úr umferðarhraða,“ segir á vefsíðunni.
Gangstéttin sunnan megin verður breikkuð og hún færð í sama stíl og er norðan megin. Um leið verður lagður háspennustrengur. Gatan verður þrengd sem nemur stækkun á gangstétt og á það, ásamt endurgerð á torginu, að draga úr umferðarhraða og auka vægi gangandi vegfarenda á svæðinu.“
Gangstéttin norðan megin verður svo einnig endurgerð frá Rub23 og niður að horninu hjá Eymundsson.
„Íbúar og stjórnendur fyrirtækja í Kaupvangsstræti hafa verið látnir vita af þessum framkvæmdum og var húseigendum í fyrra gefinn kostur á að hafa samband ef þeir vildu nýta tækifærið, til dæmis með því að setja snjóbræðslu fyrir framan sínar eignir samhliða framkvæmdunum.
Stefnt er að því að ljúka framkvæmdum í byrjun júní. Umferð gæti orðið fyrir áhrifum, en verkið verður þó unnið í áföngum til að raska umferð sem minnst. Loka gæti þurft götunni að hluta eða í heild tímabundið og verður nánar upplýst um það eftir atvikum,“ segir á heimasíða Akureyrar.