Fréttir
Enginn Norðlendingur í sóttkví eða einangrun
Ekkert kórónuveirusmit er nú á Norðurlandi; enginn í sóttkví eða einangrun. Fjórir greindust með kórónuveirusmit innanlands í gær, allir í sóttkví og enginn hefur greinst utan sóttkvíar síðan 20. janúar. Tæplega 1.100 sýni voru tekin innanlands í gær og 272 á landamærunum. Í einangrun eru nú 56 og 46 í sóttkví.