Fara í efni
Fréttir

Endurbótum á rými geðdeildar lokið

Valborg Lúðvíksdóttir, aðstoðardeildarstjóri geðdeildar SAk, Bernard Hendrik Gerritsma, deildarstjóri geðdeildar SAk, Haukur Már Hergeirsson, verslunarstjóri ELKO á Akureyri, og Karl Ólafur Hinriksson, teymisstjóri húsumsjónar SAk. Mynd: sak.is

Endurbótum á húsnæði geðdeildar Sjúkrahússins á Akureyri er lokið og var því fagnað með opnu húsi í liðinni viku þar sem samstarfsfólki og gestum gafst kostur á að skoða nýja aðstöðu deildarinnar. Frá þessu er sagt á vef Sjúkrahússins.

Miklar breytingar hafa verið gerðar á umhverfi sjúklinga og starfsfólks, þó svo legu- og meðferðarrýmum hafi ekki fjölgað. Bernard Gerritsma deildarstjóri og Valborg Lúðvíksdóttir aðstoðardeildarstjóri eru ánægð með breytingarnar, að því er fram kemur í frétt SAk. Þótt legurýmum hafi ekki fjölgað, er aðstaðan öll betri og sérstaklega var hugað að bættri vinnuaðstöðu starfsfólks.

„Við erum mjög ánægð með þessar breytingar sem voru orðnar tímabærar. Aðstaða starfsfólks var ófullnægjandi og takmarkað aðgengi var að skráningum og almennri skipulagsvinnu á vakt. Breyting á vaktrými gefur þá einnig betri yfirsýn yfir deildina í heild. Þá var einnig þörf á endurbótum á sjúklingarýmum, gólfefnum, loftklæðningum og lýsingu ásamt því að mála veggi deildarinnar. Þörfinni fyrir einbýli, fjölgun rýma og aðgengi að útsvæði mætum við þó ekki fyrr en í nýbyggingu geðdeildar á næstu árum en endurbætur á núverandi húsnæði eru að koma afar vel út,“ segja þau Bernard og Valborg.

 

Karl Ólafur Hinriksson, teymisstjóri húsumsjónar, og hans fólk hafa unnið að endurbótunum undanfarnar tíu vikur. „Framkvæmdirnar hófust þegar deildinni var lokað 7. ágúst. Nú, tíu vikum síðar, getum við loks sýnt afraksturinn sem mun auðvelda bæði starfsfólki og sjúklingum að njóta öruggara og betra umhverfis,“ segir Karl Ólafur.

Verktíminn var stuttur og það voru margir starfsmenn SAk sem þurftu að vinna samtímis á sömu svæðum til að láta framkvæmdina ganga upp. Opnun endurbættrar geðdeildar er stórt skref í átt að bættri þjónustu og umönnun skjólstæðinga á SAk. Á næsta ári er stefnt að fyrstu skóflustungu að viðbyggingu við SAk þar sem öll þjónusta geðdeildarinnar kemur saman á einu svæði.

ELKO kom færandi hendi

Í tilefni af flutningi geðdeildarinnar í nýuppgert rými kom Haukur Már Hergeirsson, verslunarstjóri ELKO á Akureyri, færandi hendi og gaf deildinni 65" sjónvarp. Það mun nýtast deildinni sérlega vel inni í dagstofu sjúklinga.