Dagrún var valin bæjarlistamaður
Dagrún Matthíasdóttir er bæjarlistamaður Akureyrar 2021. Það var tilkynnt á árlegri Vorkomu Akureyrarstofu í dag. Vegna samkomubanns var samkoman send út á Facebooksíðu Akureyrarbæjar og hægt er að skoða upptökuna hér að neðan.
Dagrún er fædd árið 1971. Hún lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti árið 1992, stundaði nám við Myndlistaskólann á Akureyri 2003-2006, og háskólanám við HA 2006-2010. Þá hefur hún sótt námskeið í myndlist og verið í vinnudvöl víða, meðal annars í Flórens á Ítalíu. Einnig hefur hún sinnt kennslu í myndlist í þónokkur ár, þar sem hún hefur meðal annars kennt grunnskólabörnum að gera bæði dúkristur og einþrykk með góðum árangri.
Heiðursviðurkenningar hlutu Ásta Sigurðardóttir menningar- og félagsmálafrömuður, Helgi Vilberg Helgason skólastjóri Myndlistarskólans á Akureyri og Kristján Pétur Sigurðsson listamaður.
Viðurkenningu Húsverndarsjóðs hlutu eigendur hússins að Lækjargötu 4, bræðurnir Hallbjörn og Hjalti Karlssynir og fjölskyldur þeirra.
Byggingarlistaverðlaun voru veitt fyrir hús Votta Jehóva við Sjafnarstíg sem finnski arkitektinn Risto Karjalainen hannaði.
Loks voru Snorra Björnssyni kennara við VMA og sjónvarpsstöðinni N4 veittar jafnréttisviðurkenning Akureyrarbæjar. Hvatningarverðlaun jafnréttismála hlaut hlaðvarpsþátturinn Bannað að dæma í umsjón Heiðdísar Austfjörð og Halldórs Kristins Harðarsonar.
Smellið hér til að sjá og heyra nánar um viðurkenningarnar og viðbrögð þeirra sem voru heiðraðir að þessu sinni.
Upphafsávarp Vorkomu – Þórgnýr Dýrfjörð
Um bæjarlistamanninn, Dagrúnu Matthíasdóttur
Viðurkenning Húsverndunarsjóðs – Lækjargata 4
Byggingalistaverðlaun – Hús Votta Jehóva