Fara í efni
Fréttir

Búið að losa skútu sem strandaði úti fyrir Gásum

Skútan á strandstað um það leyti sem hún losnaði klukkan hálf átta. Myndir: Skapti Hallgrímsson

Lítil skúta strandaði úti fyrir Gáseyri við Eyjafjörð síðdegis en björgunarsveitarmönnum tókst að losa hana klukkan hálf átta. Tveir menn voru um borð, þá sakaði ekki og skútan skemmdist ekkert eftir því sem næst verður komist.

VIÐBÓT –

Í skeyti frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu sem sent var út klukkan 20.09 eru nánari upplýsingar. Þar segir:

Klukkan 16:58 barst útkall vegna skútu sem hafði strandað í Eyjafirði. Útkallsboðin fóru á Björgunarskipið Sigurvin á Siglufirði, Súlur Björgunarsveitina á Akureyri og Björgunarsveitina Dalvík.

Súlur, Björgunarsveitin á Akureyri voru komin fyrst á vettvang um kl. 17:45 á tveimur Rescue Runnerum (svipuð tæki og jetski) og björgunarbát. Þau töluðu við áhöfn skútunnar, tvo aðila, sem voru óhult. Stuttu seinna kom Björgunarsveitin Dalvík á björgunarbát. Björgunarskipið Sigurvin kom á vettvang kl. 18:30.

Klukkan 19:30 var skútan laus og sigldi á eigin vélarafli. Bjargir eru nú á leið heim en Sigurvin fylgdi skútunni á sinn næsta áfangastað áður en heim var haldið.

Veðrið á vettvangi var gott, um 9 gráður, 3 metrar á sekúndu og bjart.
 

Þessi mynd er tekin um það bil fimm mínútum áður en náðist að losa skútuna af strandstað...

... og þessi fáeinum andartökum eftir að skútan losnaði. Þarna er búið að snúa henni eins og sjá má.