Brynjólfur og Jón fara hvergi
Brynjólfur Ingvarsson, bæjarfulltrúi Flokks fólksins á Akureyri, og Jón Hjaltason, sem skipaði þriðja sæti á lista flokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor, ætla sitja sem fastast í bæjarstjórn og nefndum Akureyrarbæjar þrátt fyrir úrsögn þeirra úr flokknum. Þetta segir Jón Hjaltason í samtali við RÚV í morgun.
Flokkurinn sendi frá sér tilkynningu í gærkvöldi þar sem Brynjólfur og Jón eru beðnir um að stíga til hliðar og tilkynnt að Hjörleifur Hallgríms hafi verið rekinn úr flokknum. Smellið hér til að sjá frétt Akureyri.net frá því í gærkvöldi.
„Það er vegið að okkur þarna með afskaplega óheiðarlegum hætti. Ég er búinn að gera þeim það tilboð, þessu óheiðarlega fólki, ef það dregur sínar ásakanir sínar til baka og biðst afsökunar, þá skuli ég íhuga þetta fyrir þau. Að öðrum kosti ekki,“ segir Jón við RÚV.
Jón segir við mbl.is, spurður um ástæður úrsagnarinnar, að honum hafi þótt makalaust hvernig forystan, formaðurinn Inga Sæland og varaformaðurinn Guðmundur Ingi, hafi vegið að flokksmönnum. „Að það skuli ekki vera neinir minnstu tilburðir af þeirra hálfu til þess að leysa málið eða einhvern veginn að komast að sannleikanum í málinu. Þeirra framkoma öll gekk gjörsamlega fram af mér. Hvernig þessar konur hafa fengið að vaða uppi með ósannindi og rakalausar fullyrðingar, þetta var bara gjörsamlega eitthvað sem kom mér á óvart og var ekki viðbúið. Þetta var óþolandi framkoma í einu orði sagt.“
Smellið hér til að sjá frétt RÚV
Smellið hér til að sjá frétt mbl.is