Fara í efni
Fréttir

Breytingum hjá strætó frestað til næsta árs

Breytingum á leiðaneti Strætisvagna Akureyrar, sem áttu að taka gildi í sumar, hefur verið frestað um eitt ár.

Á vef Akureyrarbæjar segir að eftir nánari skoðun hafi ekki verið talið raunhæft að innleiða breytingar strax. Útfæra þurfi vaktaplan í ljósi vinnutímastyttingar og kostnaðaráætlun við nýtt kerfi í heild sinni, auk þess sem kanna þurfi betur ýmsar útfærslur á leiðakerfinu áður en til innleiðingar kemur. 

Umhverfis- og mannvirkjaráð Akureyrarbæjar samþykkti á síðasta fundi sínum að breytingarnar tækju gildi 1. ágúst 2022.

„Nýtt leiðanet sem var kynnt í mars síðastliðnum að loknu samráði og endurskoðun byggir á leiðarljósum um aukna tíðni, beinni leiðir og styttri ferðatíma. Vinna við mótun leiðanetsins hófst í september 2020 á grundvelli gagnasöfnunar sem fór fram í lok árs 2019, annars vegar með almennri könnun meðal íbúa og sérstöku samráði við börn og ungmenni sveitarfélagsins,“ segir á vef Akureyrar. 

„Markmið með endurskoðun leiðakerfisins er að koma til móts við óskir íbúa um betra og skilvirkara kerfi, auka notkun, bæta nýtingu fjármuna, minnka bílaumferð og stuðla þannig að jákvæðum umhverfisáhrifum.“ 

Vefur verkefnisins