Fara í efni
Fréttir

Beint streymi frá fundi Auðlindarinnar okkar

Fjórði og síðasti opni fundurinn á landsbyggðinni á vegum verkefnisins Auðlindarinnar okkar fyrir matvælaráðuneytið verður í menningarhúsinu Hofi á Akureyri í dag. Fundurinn hefst klukkan 17.00 og stendur til 19.00.

Streymt verður frá fundinum – smellið HÉR til að fylgjast með í beinni útsendingu.

  • Fundarstjóri verður Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri.
  • Rebekka Hilmarsdóttir sérfræðingur á skrifstofu sjávarútvegs og fyrrum bæjarstjóri Vesturbyggðar mun halda erindi um verkefnið Auðlindin okkar og vinnu starfshópanna Aðgengi, Samfélag, Tækifæri og Umgengni.
  • Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra verður með innlegg einnig.

Auk þess taka þátt í fundinum:

  • Ingunn Agnes Kro, framkvæmdastjóri Jarðvarma, formaður starfshópsins Tækifæri.
  • Freydís Vigfúsdóttir, sérfræðingur í matvælaráðuneytinu og fulltrúi í starfshópshópnum Umgengni.
  • Eggert Benedikt Guðmundsson, verkfræðingur og formaður starfshópsins Aðgengi.
  • Hreiðar Þór Valtýsson, dósent við Háskólann á Akureyri og fulltrúi í starfshópnum Samfélag.
  • Mikael Rafn L. Steingrímsson, sérfræðingur hjá matvælaráðuneyti.

Í tilkynningu eru öll þau sem láta sig málefni auðlindarinnar og sjávarútvegsins varða hvött til að fylgjast með fundinum. Hægt verður að senda inn athugasemdir og fyrirspurnir meðan á fundinum stendur í gegnum slido.com/audlindinokkar.