Bangsaspítalinn á Akureyri í fyrsta sinn
Bangsaspítalinn, sem jafnan vekur mikla athygli í Reykjavík, verður starfræktur á Akureyri í fyrsta sinn næstakomandi laugardag.
„Lýðheilsufélag læknanema tilkynnir með stolti að Bangspítalinn sívinsæli verður haldinn í fyrsta skipti á Akureyri laugardaginn 17. september næstkomandi!“ segir í tilkynningu frá félaginu. „Öllum börnum ásamt foreldrum eða forráðamönnum er boðið að koma með veika eða slasaða bangsa á 5. hæð á Heilsugæslunni á Akureyri milli klukkan 10 og 16,“ segir þar.
Tilgangurinn með Bangsaspítalanum er tvíþættur, annars vegar að fyrirbyggja hræðslu hjá börnum við lækna og heilbrigðisstarfsfólk og hins vegar að gefa læknanemum á yngri árum tækifæri til að æfa samskipti við börn.
„Heimsóknin fer þannig fram að hvert barn kemur með sinn eigin bangsa. Gott er að ræða fyrirfram við barnið um það hvernig bangsinn sé veikur (hvort hann sé t.d. með hálsbólgu, magapest eða brotinn fót). Þegar á heilsugæsluna er komið fær barnið að innrita bangsann og að því loknu kemur bangsalæknir og vísar barninu inn á læknastofu þar sem læknirinn skoðar bangsann og veitir honum þá aðhlynningu sem hann þarf á að halda.“
Tekið er fram að ekkert vandamál sé of stórt eða of lítið fyrir bangsalæknana og eru hvetjur Lýðheilsufélag læknanema alla til að taka daginn frá og kíkja í heimsókn.