Fréttir
Áréttað að fólki ber mjög víða að nota grímu
25.07.2021 kl. 18:35
Um helgina tók í gildi ný reglugerð sem felur meðal annars í sér nálægðartakmörkun og grímuskyldu. Í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu segir að nokkurs misskilnings hafi gætt varðandi grímuskyldu og því hefur ráðuneytið áréttað og skýrt reglurnar sem gilda til og með 13. ágúst næstkomandi.
Ráðuneytið birti eftirfarandi í dag:
- Tryggja skal að minnsta kosti 1 metra á milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum, til að mynda á samkomum, vinnustöðum, verslunum, söfnum og í allri annarri starfsemi, hvort sem er innan- eða utandyra.
- Grímuskylda er þar sem ekki er unnt að viðhalda 1 metra nálægðartakmörkunum og þar sem húsnæði er illa loftræst. Þetta á til að mynda við um heilbrigðisþjónustu, verslanir, söfn, innanlandsflug og -ferjur, almenningssamgöngur, leigubifreiðar og hópbifreiðar, í verklegu ökunámi og flugnámi, starfsemi hárgreiðslustofa, snyrtistofa, nuddstofa, húðflúrstofa, hundasnyrtistofa, sólbaðsstofa og í annarri sambærilegri starfsemi.
- Grímuskylda er í gildi fyrir áhorfendur á íþróttaviðburðum og sviðslistarviðburðum á borð við leiksýningar, bíósýningar og tónleika.
Börn fædd 2006 og síðar eru undanþegin reglum um grímuskyldu.