Fara í efni
Fréttir

Andlát: Sigmundur Þórisson

Sigmundur Þórisson rafmagnsiðnfræðingur og fyrrverandi formaður Knattspyrnufélags Akureyrar er látinn, 78 ára að aldri. Sigmundur fæddist í Reykjavík 30. mars 1946 og lést á Hjúkrunarheimilinu Hlíð á Akureyri 20. september 2024.

Foreldrar Sigmundar voru Þuríður Sigmundsdóttir húsmóðir og skrifstofumaður og Þórir Högni Bergsteinsson múrarameistari. Systkini hans eru: Svava Ragnhildur Eatough f. 1. apríl 1940, búsett í Bandaríkjunum og Örn Þórisson f. 3. janúar 1958, búsettur í Reykjavík.

Sigmundur kvæntist Minnie Eggertsdóttur, f. 13. maí 1946, sérkennara þann 9. ágúst 1969. Þau slitu samvistir árið 2004.

Synir Sigmundar og Minnie eru:

1) Freyr Gauti f. 17. janúar 1972 bæklunarskurðlæknir búsettur í Svíþjóð. Eiginkona hans er Sylvía Húnfjörð tannlæknir. Börn þeirra eru: Halldóra Minnie f. 2006, Kara Dögg f. 2007 og Þórir Steinn f. 2009.

2) Eggert Högni f. 21. febrúar 1974 sjávarútvegsfræðingur búsettur á Akureyri. Sambýliskona hans er Árný Þóra Ármannsdóttir náms- og starfsráðgjafi. Með f.v. konu sinni Sólrúnu Óladóttur á Eggert synina: Tómas Frey f. 2001, Ísak Óla f. 2004 og Egil f. 2013.

3) Þórir Svavar f. 6. mars 1979 svæfinga- og gjörgæslulæknir búsettur í Reykjavík. Eiginkona hans er Hulda Steingrímsdóttir viðskiptafræðingur. Synir þeirra eru: Þorri Steinn f. 2007, Elís Agnar f. 2011 og Axel Sigmar f. 2014.

Sigmundur lauk sveinsprófi í rafvélavirkjun frá Iðnskólanum í Reykjavík 1968 og útskrifaðist sem rafmagnsiðnfræðingur frá Tækniskóla Íslands 1971. Hann starfaði sem rafmagnsiðnfræðingur hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur árin 1971 – 1974, yfireftirlitsmaður hjá Rafmagnseftirliti ríkisins frá 1974 og umdæmiseftirlitsmaður með aðsetur á Akureyri frá 1977 þar til rafmagnseftirlitið var lagt niður. Eftir það starfaði Sigmundur hjá Rafmagnsveitum ríkisins (RARIK) og sat m.a. í stjórn félags eftirlitsmanna með raforkuvirkjum 1988 -1990.

Sigmundur var mikill áhugamaður um íþróttir, gegndi trúnaðarstörfum fyrir íþróttahreyfinguna og var sæmdur fjölmörgum heiðursmerkjum fyrir störf sín. Ungur maður lék Sigmundur handbolta með KR en eftir að fjölskyldan flutti til Akureyrar fylgdi hann sonum sínum eftir í íþróttum og gerðist KA maður. Sigmundur var kosinn í stjórn Knattspyrnufélags Akureyrar 1987 og var formaður félagsins frá 1989 til 1998 og heiðursfélagi frá 2008. Í formannstíð sinni stóð hann m.a. fyrir byggingu íþróttahúss KA og tók þátt í hraðri uppbyggingu félagsins í fjölmörgum íþróttagreinum ásamt fleira góðu KA fólki.

Útför Sigmundar Þórissonar fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 4. október kl. 13.00.