Fara í efni
Fréttir

Andlát: Séra Sigfús Baldvin Ingvason

Séra Sigfús Baldvin Ingvason er látinn, aðeins sextugur að aldri, eftir langvarandi veikindi. Sigfús fæddist á Akureyri þann 10. apríl árið 1963. Greint er frá andláti hans á vef Þjóðkirkjunnar.

Foreldrar hans eru Ingvi Svavar Þórðarson og Ásgerður Snorradóttir.

Sigfús varð stúdent frá Verkmenntaskólanum á Akureyri árið 1986 og cand. theol. frá Háskóla íslands 1. febrúar árið 1992. Hann hafði umsjón með sunnudagaskóla í Digranessókn og sá um barna- og æslulýðsstarf KFUM og KFUK.

Hann var starfsmaður Kristilegra skólasamtaka og forstöðumaður sumarbúða KFUM og KFUK á Hólavatni, var fræðari á fermingarnámskeiðum í Skálholti og hafði umsjón með félagsstarfi fatlaðra í Reykjavík. Þá var hann æskulýðsfulltrúi í Fella- og Hólakirkju.

Séra Sigfús var vígður þann 15. ágúst árið 1993 til Keflavíkurkirkju. Hann leysti af sem sóknarprestur í Útskálasókn í Kjalarnesprófastsdæmi árið 1995-1996.

Sigfús baðst lausnar frá embætti þann 1. ágúst árið 2015 af heilsufarsástæðum. Eftirlifandi eiginkona sr. Sigfúsar er Laufey Gísladóttir. Dætur þeirra eru Birta Rut Tiasha og Hanna Björk Atreye.