Fréttir
Akureyri: 177 í sóttkví og 76 í einangrun
Á Akureyri eru nú 177 í sóttkví og 76 í einangrun vegna Covid-19 skv. tölum sem birtar voru í morgun. Alls greindust 926 með kórónuveiruna í gær og hafa aldrei verið fleiri; 839 innanlands og 87 á landamærunum.
Nú eru 6.368 í einangrun hérlendis og 7.768 í sóttkví. 21 liggur á sjúkrahúsi vegna Covid-19, þar af eru sex á gjörgæslu.