Fara í efni
Fréttir

Akureyrarbær: nýr vefur opnaður í gær

Nýr vefur Akureyrarbæjar var opnaður í gær á slóðinni Akureyri.is.

Vefurinn hefur verið í undirbúningi og vinnslu undanfarið rúmt ár í samstarfi við hönnunar- og hugbúnaðarhúsið Hugsmiðjuna. Starfsfólk þjónustu- og menningarsviðs Akureyrarbæjar hefur leitt verkefnið en fulltrúar allra sviða hafa komið að vinnunni, að því er segir í tilkynningu á vefnum.

„Við þróun á vefnum var meðal annars lögð áhersla á notendavæna og nútímalega hönnun, aðgengi, góða leit, lifandi miðlun og að vefurinn virki vel í öllum tækjum, einkum snjallsímum.

Jafnframt var eitt af markmiðum að samhæfa síður stofnana bæjarins. Því er gleðilegt að í fyrsta fasa séu, samhliða aðalvefnum, opnaðir nýir vefir Amtsbókasafnsins, Iðavallar og Lundarskóla sem og sérstök vefsvæði fyrir Hrísey og Grímsey. Stefnt er að því að fleiri leik- og grunnskólar bætist við á næstu mánuðum og verði hluti af sama vefkerfi.“

Fram kemur að þrátt fyrir að vefurinn sé formlega opinn þá sé vinnu við nýjan vef ekki að fullu lokið og ýmis atriði enn í vinnslu og frekari þróun.

„Ef þið hafið hugmyndir fyrir vefinn eða sjáið eitthvað sem má betur fara þá væri vel þegið að fá ábendingar“ segir á vefnum – á netfangið vefstjorn@akureyri.is.