Fara í efni
Fréttir

Ákall úr Hlíðarfjalli: Hvar ertu vetur? Komdu!

Til stóð að opna skíðasvæðið í Hlíðarfjalli á föstudaginn, 13. desember, en af því verður ekki. „Veðurguðirnir eru ekki í liði með okkur þessa dagana og það er ljóst að við náum ekki að opna á föstudaginn 13. des eins og stefnt var á og verður allavega viku frestun …“ segir á Facebook síðu skíðasvæðisins.
 
Hlýtt hefur verið í veðri síðustu daga og hláka þannig að mikinn snjó hefur tekið upp. „Við ætlum að reyna allt sem við getum til að opna fyrir jólin en til þess þarf veðrið að vinna með okkur,“ segir ennframur á síðunni. „Mikið hefur bráðnað af snjó í fjallinu en við vonum að framleiddi snjórinn standi þetta betur af sér enda hann þéttari, við fylgjumst með veðurspám og setjum að sjálfsögðu framleiðslu beint í gang um leið og aðstæður leyfa. Endurmetum stöðuna í byrjun næstu viku.“