Áhersla á geðheilbrigði á vinnustöðum
Mögnum, ráðgjafarfyrirtæki á sviði mannauðsmála á Akureyri hefur tekið höndum saman við Mental ráðgjöf og áætla fyrirtækin að vinna í nánu samstarfi í þágu geðheilbrigðis á vinnustöðum á Norðurlandi. Þetta kemur fram í tilkynningu fyrirtækjanna. „Hjá Mental ráðgjöf vinnum við statt og stöðugt að því að vinnan geti verið góð fyrir geðheilsuna og höfum undanfarin tvö ár unnið sleitulaust að því að að því að styrkja stjórnendur og starfsfólk í því að stuðla að og hlúa að geðheilbrigði á vinnustöðum. Nú komum við norður til Akureyrar, þar sem Mögnum hefur um árabil boðið fjölbreytta ráðgjöf í tengslum við mannauðsmál á vinnustöðum. Með reynslu Mögnum og skilningi á staðbundnum áskorunum á svæðinu teljum við okkur vera í stakk búin til að hafa enn meiri áhrif,“ segir meðal annars í tilkynningunni.
Helena Jónsdóttir er stofnandi og framkvæmdastjóri Mental ráðgjafar. „Samstarf okkar við Mögnum er til marks um óbilandi hollustu okkar við að efla geðheilbrigði starfsfólks á vinnustöðum víða um landið. Með því að sameina krafta okkar stefnum við að því að auka þau áhrif sem okkur er unnt að hafa, ná til fleiri vinnustaða og starfsmanna til að stuðla að vinnuumhverfi þar sem geðheilbrigði er í fyrirrúmi,“ segir Helena í tilkynningu fyrirtækjanna.
Fyrirtækin munu ýta samstarfi sínu formlega úr vör með kynningu í Háskólanum á Akureyri fimmtudaginn 23. maí. Þar verður fjallað um mikilvægi þess að setja geðheilbrigði á dagskrá á vinnustöðum og deila upplýsingum um nálgun fyrirtækjanna og aðferðafræði. Við sama tækifæri munu Erla Björnsdóttir og Kristjana Kristjánsdóttir frá Sjúkrahúsinu á Akureyri fjalla um vegferð síns vinnustaðar við að styðja við bætta líðan starfsfólks.
Sigríður Ólafsdóttir er stofnandi Mögnum. „Við erum spennt að taka höndum saman með Mental ráðgjöf í sameiginlegu verkefni okkar til að hlúa að geðheilbrigðum vinnustöðum á Norðurlandi og víðar. Samstarf okkar táknar nýjan kafla í viðleitni okkar til að styrkja fyrirtæki og stofnanir með þeirri þekkingu og verkfærum sem þarf til að styðja við geðheilsu síns starfsfólks. Við væntum mikils af þessu samstarfi,“ segir Sigríður um samstarf fyrirtækjanna.