Fara í efni
Fréttir

Ágústmetið verður slegið rækilega

Líklega telst það túlkunaratriði hvenær veðrið er „of gott“ en það hefur í það minnsta verið sögulega hlýtt á Akureyri í sumar. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.

„Á Akureyri er ekki nóg með að meðalhitinn í júlí hafi slegið öll met með 14,3°C, heldur stefnir líka í met í ágúst!“ Þannig hefst Facebook-pistill Einars Sveinbjörnssonar, veðurfræðings hjá Bliku og veðurvinar Akureyri.net. Yfirskrift pistilsins er Ólíkindasumarið 2021.

„Meðalhitinn nú endar sennilega í 14,0°C (eða 14,1°C). Fyrra met var 13,2°C í ágúst 1947. Líkt og í júlí er gamla metið slegið rækilega,“ segir Einar.

Ekki nóg með, segir Einar, því hiti yfir sumarið í heild – júní, júlí og ágúst – „stefnir líka í hæstu hæðir eða 12,7°C. Sumarið 1933 hefur lengið verið í minnum haft fyrir norðan með sínar 12,2°C fyrir sömu mánuði.

Og þetta næst jafnvel þó svo að júní hafi verið kaldur framan af, um 1 stigi undir meðallagi fyrstu 20 dagana (8,2°C).

Allt saman er þetta með miklum ólíkindum!!!“