Fara í efni
Fréttir

Afhenti 370.000 krónur í minningu Aðalbjargar

Hólmfríður Jóhannsdóttir, til vinstri, og Eva Björg Óskarsdóttir, markaðs- og móttökustjóri Krabbameinsfélags Akureyar og nágrennis. Mynd af vef félagsins.

Hólmfríður Jóhannsdóttir afhenti Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis 370.000 krónur í styrk á dögunum, en féð safnaðist í tengslum við minningartíma um Aðalbjörgu Hafsteinsdóttur jógakennara og líkamsræktarfrömuð á Akureyri. Greint er frá þessu á vef félagsins.

„Aðalbjörg lést 8. ágúst síðastliðinn eftir langa baráttu við brjóstakrabbamein. Hún var áberandi í bæjarlífinu á Akureyri meðan hún bjó hér þar sem hún var einn af eigendum Líkamsræktarinnar Bjargs ásamt eiginmanni sínum Ólafi Óskarssyni. Hún var elskuð og dáð af öllum sem til hennar þekktu vegna sérstaklega góðrar nærveru og hvað hún var yndisleg manneskja,“ sagði Hólmfríður þegar hún afhenti styrkinn. 

„Eftir að hún greindist með krabbamein og meðan hún bjó hér á Akureyri var hún dugleg að nýta sér það sem Krabbameinsfélagið bauð uppá og var afar ánægð með þá þjónustu og hlýlega viðhorfið sem ríkir þar. Því kom ekki annað til greina en að safna fyrir þetta félag þegar ég ákvað að halda þennan minningar- og styrktartíma fyrir þessa dásamlegu vinkonu mína. Með von um að þessi gjöf komi að góðum notum fyrir ykkur.“

Félagið þakkar Hólmfríði og öðru sem lögðu söfnuninni lið kærlega fyrir stuðninginn. Á vef félagsins kemur fram að ákveðið hafi verið að nota fjárhæðina í jóga námskeið fyrir félagsmenn og aðstandendur, í anda Aðalbjargar.