Af hverjum kom gos? Er orkan endalaus?
Opnað hefur verið fyrir skráningu í Vísindaskóla unga fólksins sem haldinn verður í sjötta skipti í júní í Háskólanum á Akureyri. Á heimasíðu skólans segir að fyrstu viðbrögð hafi verið mjög góð en alls getur skólinn tekið á móti 75 nemendum. „Að venju verða öll þemun í ár ný og áhugaverð. Meðal þess sem verður í boði er fræðsla um jarðfræði og eldgos sem tengist eldsumbrotunum á Reykjanesi og kennsla á vegum Alþingis um lýðræði og störf þingsins, enda kosningar í haust," segir á vef skólans.
Skólinn hóf starfsemi 2015 og er ætlaður börnum á aldrinum 11 til 13 ára. Reynslan hefur sýnt að bæði strákar og stelpur sýna þessum sumarskóla mikinn áhuga og hafa kynjahlutföll í þátttakendahópnum verið mjög jöfn. Skólinn verður starfandi dagana 21. til 25. júní og hægt er að nota tómstundastyrkinn frá Akureyrarbæ til þess að greiða þátttökugjald.
Umsjónarmenn þessa verkefnis leggja áherslu á að bjóða upp á áhugavert og fjölbreytt efni og að kennslan sé lifandi og skemmtileg, segir á vef Háskólans á Akureyri, en skólastarfið fer að venju fram í húsnæði hans.
Hægt er að skrá þátttöku hér.
Yfirskrift á þemunum fimm er sem hér segir:
- Af hverju kom gos á Reykjanesi?
- Lengi lifi Ísland
- Björgunarsveitarstörf, býflugur og blómin
- Sem betur fer erum við ekki öll eins
- Er orkan endalaus?
Nánari upplýsingar veitir Dana Rán Jónsdóttir.