Fara í efni
Fréttir

Aðstæður víða varhugaverðar

Lögreglan á Norðurlandi eystra varar við hálku í landshlutanum. „Kæru Norðlendingar! Nú í morgunsárið eru varhugaverðar aðstæður í veðráttunni. Það rignir ofan á ísilagða vegi, götur og gangstíga um allt embættið, bæði í þéttbýli og dreifbýli. Förum með gát og sýnum sérstaka aðgæslu bæði akandi og gangandi. Komum heil heim og megið þið eiga góða helgi,“ segir á Facebook síðu embættisins í morgun.