Fara í efni
Fréttir

810 sjúkraflug í fyrra með 893 sjúklinga

Starfsmenn Slökkviliðs Akureyrar og Mýflugs fóru 810 sjúkraflug á síðasta ári, með 893 sjúklinga; stundum voru fleiri en einn sjúklingar í hverri ferð.

Flugferðum með sjúklinga hefur fjölgað síðustu ár. Metárið var 2019 þegar ferðirnar voru 806 og var það met því slegið á nýliðnu ári.

Myndin birtist á Facebook síðu Slökkviliðs Akureyrar. „Við máttum til með að deila þessari fallegu ljósmynd úr fyrsta sjúkraflugi ársins 2022,“ segir þar.