500. rafbíllinn í flota Bílaleigu Akureyrar
Höldur - Bílaleiga Akureyrar tók á dögunum við 500. rafbílnum í bílaflota sinn. Hreinum rafbílum fyrirtækisins hefur fjölgað hratt síðustu ár og er það í takt við áherslur fyrirtækisins um að vera ávallt í fararbroddi í umhverfismálum og leiðandi í orkuskiptum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.
Fyrsta rafbílinn keypti Höldur - Bílaleiga Akureyrar árið 2008. Þar var um að ræða þátttöku í tilraunaverkefni með nokkrum opinberum aðilum. Árið 2012 var fyrst boðið upp á rafbíl í almennri útleigu. Sá bíll var að gerðinni Mitsubishi i-Miev og var drægnin um 80km. Árið 2017 voru rafbílarnir 19 talsins, árið 2020 voru þeir 124 og í lok febrúar 2023 voru rafbílarnir í flotanum orðnir 500 talsins.
„Frábær áfangi“
„Fimmhundraðasti rafbíllinn var af gerðinni VW ID4 en fyrirtækið býður fjölbreytt úrval rafbíla frá ýmsum framleiðendum s.s. Volkswagen, Kia, Tesla, Polestar, Mercedes-Benz, Audi, Hyundai, Maxus, Skoda, Renault, Nissan og Hongqi,“ segir í tilkynningunni.
Þar kemur fram að á síðustu árum hafi fyrirtækið einnig unnið að uppbyggingu hleðsluinnviða með stækkun heimtauga og uppsetningu á 60 hleðslustöðvum á sex starfsstöðvum víða um landið.
„Það er frábært að ná þeim áfanga að vera komin með yfir 500 rafbíla í flotann,“ segir Steingrímur Birgisson forstjóri Hölds- Bílaleigu Akureyrar. „Rafbílum hefur fjölgað hratt síðustu ár og úrvalið aukist til muna. Við bjóðum rafbíla frá öllum helstu framleiðendum bæði í langtíma- og skammtímaleigu. Að auki bjóðum við uppá mikinn fjölda vistvænna bíla og er fjöldi rafbíla sem og vistvænna bíla nú um 26% af heildarflota okkar.“