Fréttir
300 mega koma saman - veitingastaðir opnir lengur
14.06.2021 kl. 10:34
Alls mega 300 manns koma saman hér á landi frá og með miðnætti, þegar ný reglugerð tekur gildi, en voru aðeins 150 skv. þeirri reglugerð heilbrigðisráðherra vegna Covid-19 sem gilt hefur undanfarið. Grímuskylda verður áfram á viðburðum þar sem fólk situr en fjarlægðarmörk eru aftur á móti komin niður í einn metra, í stað tveggja. Veitingastaðir mega vera opnir klukkustund lengur en verið hefur, til miðnættis, og síðustu gestir þurfa að vera farnir út klukkutíma síðar.
Helstu breytingar á samkomutakmörkunum frá og með morgundeginum eru þessar:
- Almennar fjöldatakmarkanir 300 manns. Börn fædd 2015 og síðar áfram undanþegin.
- Nándarregla einn metri í stað tveggja.
- Sitjandi viðburðir: Engin krafa um nándarmörk. Áfram grímuskylda og að hámarki 300 manns í hverju sóttvarnahólfi. Með sitjandi viðburðum er átt við leikhús, íþróttaviðburði, athafnir trúar- og lífsskoðunarfélaga, ráðstefnur og viðlíka.
- Veitingastaðir: Opnunartími veitingastaða lengist um klukkustund, frá kl. 23 til miðnættis. Gestir þurfa að hafa yfirgefið staðinn fyrir kl. 01.00.
- Gildistími: Reglugerð sem felur í sér ofangreindar breytingar á samkomutakmörkunum innanlands mun gilda til og með þriðjudagsins 29. júní næstkomandi.