Fréttir
17 smit innanlands - 400 bólusettir á Akureyri
24.03.2021 kl. 12:00
Einn er í einangrun á Norðurlandi eystra vegna Covid-19 og fimm í sóttkví, skv upplýsingum á covid.is í morgun. Ekki er gefið upp hvar í landshlutanum viðkomandi eru búsettir.
Í gær voru rúmlega 400 bólusettir á slökkvistöðinni á Akureyri. Þessa viku eru þeir bólusettir öðru sinni sem fengu fyrri skammtinn 2. - 5. mars en í þeim hópi eru m.a. 80 ára og eldri.
Alls greindust 17 smit innanlands í gær, þar af voru 14 í sóttkví. Fimm smit greindust á landamærunum, þar af tvö í seinni skimun. Nú eru 75 í einangrun hérlendis og 454 í sóttkví.