11 bjóða sig fram í 5 sæti – kosið á morgun
11 hafa tilkynnt um framboð í efstu sæti lista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi fyrir Alþingiskosningar sem fram fara 30. nóvember. Raðað verður á lista flokksins á morgun, á tvöföldu kjördæmisþingi sem fram fer í Skjólbrekku í Mývatnssveit.
Fyrst verður kosið um fimm efstu sætin, þar sem aðal- og varamenn í kjördæmisráði hafa atkvæðisrétt, allt að 260 manna hópur.
Frambjóðendur í oddvitasætið:
- Jens Garðar Helgason, 47 ára, Eskifirði.
- Njáll Trausti Friðbertsson, 54 ára, Akureyri.
Frambjóðendur í 2. sæti:
- Berglind Ósk Guðmundsdóttir, 31 ára, Akureyri.
- Berglind Harpa Svavarsdóttir, 48 ára, Egilsstöðum.
- Valgerður Gunnarsdóttir, 69, Norðurþingi.
Frambjóðendur í 3. sæti:
- Almar Marinósson, 43 ára, Þórshöfn.
- Jón Þór Kristjánsson, 33 ára, Akureyri.
- Ketill Sigurður Jóelsson, 38 ára, Akureyri.
- Kristinn Karl Brynjarsson, 58 ára, Reyðarfirði.
Tvö bjóða sig fram í önnur sæti:
- Telma Ósk Þórhallsdóttir, 19 ára, Akureyri (í 3.- 5. sætið).
- Þorsteinn Kristjánsson, 27 ára, Akureyri (í 4. sætið).
Fyrst verður kosið í 1. sæti og þegar niðurstaða þar liggur fyrir er kosið í 2. sætið og svo koll af kolli. Frambjóðandi sem ekki hlýtur brautargengi í ákveðið sæti getur því boðið sig fram að nýju í næsta sæti.
Eftir að raðað hefur verið í fimm efstu sætin verður kosið um tillögu kjörnefndar um 6. - 20. sæti.
Framboðsfrestur er þar til á morgun svo enn þeim gæti enn fjölgað sem bjóða sig fram.
Í tilkynningu er bent á að á vefsíðu flokksins á Akureyri sé að finna kynningu frambjóðendunum 11 – SMELLIÐ HÉR