Verkmenntaskólinn á Akureyri
Draugar og kynjaverur í hryllingshúsi í VMA
25.10.2024 kl. 10:40
Mynd: Unsplash/Ian Gao
Í dag föstudaginn 25. október verður boðið upp á Hryllingshús í Verkmenntaskólanum á Akureyri. Það er Leikfélag VMA sem stendur fyrir hryllingnum í tilefni af Hrekkjavökunni sem er í næstu viku.
Allir eru boðnir velkomnir á Hryllingshúsið milli kl. 17 og 20 og er gengið inn um innganginn að vestan. Börn yngri en 10 ára verða að vera í fylgd með fullorðnum en búast má við alls konar draugum og kynjaverum á staðnum og eru gestir hvattir til að mæta í búningum. Hleypt verður inn í húsið í hópum og með hverjum hóp er sögumaður sem leiðir gesti í gegnum húsið. Aðgangur er ókeypis.