Mikil svifryksmengun í gær, í dag og á morgun
Mjög mikil svifryksmengun var á Akureyri um níuleytið í morgun, 150 míkrógrömm á rúmmetra – 150 µg/m³. Það telst „óhollt fyrir viðkvæma“ en síðan hefur dregið mjög úr menguninni.
Í gær fór svifryksmengun yfir sólarhringsheilsuverndarmörk í loftgæðamælistöðinni við Strandgötu en sólarhringsmeðaltal var 60 míkrógrömm á rúmmetra Búast má við að ástandið verði með svipuðu móti í dag og trúlega á morgun líka, að því er segir á vef Akureyrarbæjar.
Akureyrarbær og Vegagerðin rykbinda helstu umferðargötur til að bregðast við ástandinu. Einnig hefur verið unnið að hreinsun gatna síðustu dægrin til að sporna við svifryksmengun.
Íbúar eru hvattir til þess að draga úr akstri eins og kostur er. Til dæmis með því að nýta sér almenningssamgöngur, sameinast í bíla eða nota aðra vistvæna samgöngumáta. Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum, aldraðir og börn, ættu að forðast útivist í lengri tíma og takmarka áreynslu í nágrenni fjölfarinna umferðargatna.
Hægt er að fylgjast með mælingum á styrk svifryks og annarra mengunarefna við Strandgötu á vefnum loftgæði.is.
Hér má sjá tölur um styrk svifryks í dag:
Mynd af vef Umhverfisstofnunar sem skýrir hvað litirnir tákna: