Fara í efni
Þór

Þór blæs til súpufunda á ný – Vanda fyrsti gestur

Íþróttafélagið Þór hefur ákveðið að hefja súpufundaröð á ný, með stuðningi veitingahússins Greifans, í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Frambjóðendum þeirra stjórnmálaafla sem bjóða fram í kosningunum í vor verður boðið til þess heyra áherslur flokkanna í íþróttamálum, segir í tilkynningu frá Þór.

„En þar sem stjórnmálaflokkarnir eru ekki komnir með uppstillta lista ennþá höfum við ákveðið að halda fyrsta fundinn föstudaginn 18. febrúar og fyrsti gestur súpufundar Þórs og Greifans að þessu sinni er Vanda Sigurgeirsdóttir formaður Knattspyrnusambands Íslands, K.S.Í. Fundarstjóri súpufunda Þórs og Greifans er sem fyrr Viðar Sigurjónsson.

Fundarformið verður eins og fyrr. Við byrjum fundinn kl 12.00 með því að fá okkur ljúffenga súpu og brauð frá Greifanum og svo hefur gestur fundarins framsögu og svarar svo spurningum úr sal.

Allir sem láta sig málefni knattspyrnunnar á Íslandi varða eru velkomnir á meðan húsrúm í Hamri félagsheimili Þórs leyfir.

Súpa brauð og kaffi einungis kr 1000 per mann,“ segir í tilkynningunni.

Á árunum 2006 til 2009 hélt Þór 29 súpufundi í samstarfi við veitingahúsið Greifann og Vífilfell. „Þessir fundir voru gríðarlega vel heppnaðir og á þeim voru málefni íþróttahreyfingarinnar á Akureyri krufin og mikil og góð umræða skapaðist á fundunum og til dæmis var oft og einatt vitnað í súpufundi Þórs á bæjarstjórnarfundum.“