Þór
Sópuðu að sér viðurkenningum!
23.06.2021 kl. 13:20
Lokahóf HSÍ! Frá vinstri: Matea Lonac, Rakel Sara Elvarsdóttir, Árni Bragi Eyjólfsson, Rut Arnfjörð Jónsdóttir og Andri Snær Stefánsson. Ljósmynd: Alma Skaptadóttir.
Akureyringar fengu fjölda verðlauna í lokahófi Handknattleikssambands Íslands sem fram fór í Reykjavík í hádeginu.
Rut Arnfjörð Jónsdóttir, KA/Þór, og Árni Bragi Eyjólfsson, KA, voru valin bestu leikmenn nýliðins keppnistímabils. Rakel Sara Elvarsdóttir úr KA/Þór var valin efnilegasti leikmaðurinn og Andri Snær Stefánsson, þjálfari KA/Þórs, besti þjálfarinn í kvennaflokki.
Sannarlega frábær uppskera, en leikmenn Akureyrarliðanna fengu mun fleiri viðurkenningar. Hér má sjá lista yfir þær allar:
- Háttvísisverðlaun Handknattleiksdómarasambands Íslands 2021: Árni Bragi Eyjólfsson – KA
- Markahæsti leikmaður Olísdeildar karla 2021: Árni Bragi Eyjólfsson – KA með 163 mörk.
- Besti sóknarmaður Olísdeildar kvenna 2021: Rut Arnfjörð Jónsdóttir – KA/Þór.
- Besti sóknarmaður Olísdeildar karla 2021: Árni Bragi Eyjólfsson - KA.
- Besti markmaður Olísdeildar kvenna 2021: Matea Lonac – KA/Þór.
- Sigríðarbikarinn 2021: Rut Arnfjörð Jónsdóttir – KA/Þór; þá viðurkenningu fær sá leikmaður sem þykir mikilvægastur í deildinni. Bikarinn var gefinn af Sigríði Sigurðardóttur, fyrirliða íslenska landsliðsins í handknattleik þegar það varð Norðurlandameistari 1964, og fyrstu konunni sem kjörin var Íþróttamaður ársins, einmitt það ár.
- Valdimarsbikarinn 2021: Árni Bragi Eyjólfsson – KA; þá viðurkenningu fær sá leikmaður sem þykir mikilvægastur í deildinni. Bikarinn var gefinn í minningu Valdimars Sveinbjörnssonar, mannsins sem kynnti Íslendingum handknattleikinn eftir að hann kynntist leiknum í Danmörku.
- Besti þjálfari í Olísdeild kvenna 2021: Andri Snær Stefánsson – KA/Þór.
- Efnilegasti leikmaður Olísdeildar kvenna 2021: Rakel Sara Elvarsdóttir – KA/Þór.
- Besti leikmaður Olísdeildar kvenna 2021: Rut Arnfjörð Jónsdóttir – KA/Þór
- Besti leikmaður Olísdeildar karla 2021: Árni Bragi Eyjólfsson - KA
Aðrar viðurkenningar á lokahófinu voru þessar:
- Háttvísisverðlaun HDSÍ kvenna 2021: Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir - ÍBV
- Unglingabikar HSÍ: Haukar
- Markahæsti leikmaður 1. deildar kvenna 2021: Sara Katrín Gunnarsdóttir – HK með 154 mörk
- Markahæsti leikmaður 1. deildar karla 2021: Kristján Orri Jóhannsson – Kría með 178 mörk.
- Markahæsti leikmaður Olísdeildar kvenna 2021: Ragnheiður Júlíusdóttir – Fram með 121 mark.
- Besti varnarmaður 1. deildar kvenna 2021: Ída Margrét Stefánsdóttir – Valur U.
- Besti varnarmaður 1. deildar karla 2021: Hjalti Már Hjaltason - Víkingur.
- Besti varnarmaður Olísdeildar kvenna 2021: Sunna Jónsdóttir - ÍBV.
- Besti varnarmaður Olísdeildar karla 2021: Tandri Már Konráðsson - Stjarnan.
- Besti sóknarmaður 1. deildar kvenna 2021: Sara Katrín Gunnarsdóttir - HK.
- Besti sóknarmaður 1. deildar karla 2021: Kristján Orri Jóhannsson – Kría.
- Besti markmaður 1. deildar kvenna 2021: Eva Dís Sigurðardóttir – Afturelding.
- Besti markmaður 1. deildar karla 2021: Andri Sigmarsson Scheving – Haukar U.
- Besti markmaður Olísdeildar karla 202: Vilius Rasimas - Selfoss.
- Besta dómaraparið 2021: Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson.
- Besti þjálfari í 1. deild kvenna 2021: Guðmundur Helgi Pálsson – Afturelding.
- Besti þjálfari í 1. deild karla 2021: Elías Már Halldórsson - HK.
- Besti þjálfari í Olísdeild karla 202: Aron Kristjánsson - Haukar
- Efnilegasti leikmaður 1. deildar kvenna 2021: Sara Katrín Gunnarsdóttir - HK
- Efnilegasti leikmaður 1. deildar karla 2021: Guðmundur Bragi Ástþórsson – Haukar U.
- Efnilegasti leikmaður Olísdeildar karla 2021: Blær Hinriksson – Afturelding
- Leikmaður ársins í 1. deild kvenna 2021: Erna Guðlaug Gunnarsdóttir – Fram
- Leikmaður ársins í 1. deild karla 2021: Kristján Orri Jóhannsson – Kría