Þór
Rut, Unnur og Rakel Sara í landsliðshópnum
06.04.2022 kl. 11:26
Rakel Sara Elvarsdóttir og Unnur Ómarsdóttir eru báðar í landsliðshópnum fyrir Svíaleikina. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.
Þrír leikmenn KA/Þórs eru í landsliðshópi Arnars Péturssonar fyrir tvo síðustu leikina í riðlakeppni EM í handbolta; Rut Jónsdóttir og Unnur Ómarsdóttir voru valdar að vanda og Rakel Sara Elvarsdóttir er nú í lokahópnum. Hún var í æfingahópi fyrir síðustu landsleikjatörn en ekki í endanlegum hópi.
Ísland mætir Svíþjóð á Ásvöllum í Hafnarfirði miðvikudaginn 20. apríl og síðan Serbíu ytra laugardaginn 23. apríl. Þegar er ljóst að leikurinn í Serbíu verður úrslitaleikur um annað sætið í riðlinum og þar með farseðil á Evrópumótið í nóvember.
Leikmennirnir sem Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari, valdi fyrir leikina tvo eru þessir; leikir og mörk í sviga:
Markverðir
- Elín Jóna Þorsteinsdóttir, Ringköbing Håndbold (37/1)
- Hafdís Renötudóttir, Fram (34/1)
Aðrir leikmenn
- Andrea Jacobsen, Kristianstad (29/30)
- Elísa Elíasdóttir, ÍBV (4/0)
- Harpa Valey Gylfadóttir, ÍBV (12/12)
- Helena Rut Örvarsdóttir, Stjörnunni (49/80)
- Hildigunnur Einarsdóttir, Val (88/98)
- Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, HK (3/7)
- Karen Knútsdóttir, Fram (104/370)
- Lovísa Thompson, Val (27/64)
- Rakel Sara Elvarsdóttir, KA/Þór (3/2)
- Rut Jónsdóttir, KA/Þór (106/223)
- Sandra Erlingsdóttir, EH Aalborg (10/30)
- Steinunn Björnsdóttir, Fram (36/50)
- Sunna Jónsdóttir, ÍBV (65/50)
- Thea Imani Sturludóttir, Val (52/82)
- Unnur Ómarsdóttir, KA/Þór (36/41)
- Þórey Rósa Stefánsdóttir, Fram (111/327)
Báðir leikirnir verða í beinni útsendingu á RÚV.