Fara í efni
Þór

Lítið skorað þegar KA/Þór tapaði í Garðabæ

Matea Lonac var besti leikmaður KA/Þórs þegar liðið tapaði fyrir Stjörnunni. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

KA/Þór tapaði fyrir Stjörnunni um helgina í efstu deild kvenna í handbolta, Olís deildinni. Óvenju lítið var skorað í Garðabænum að þessu sinni; úrslitin urðu 19:16 eftir að Stjarnan hafði forystu í hálfleik, 11:6.

Vert er að geta þess að Rut Jónsdóttir lék ekki með vegna meiðsla og Unnur Ómarsdóttir var heldur ekki í leikmannahópnum.

Hildur Lilja Jónsdóttir og Nathalia Soares Baliana skoruðu mest fyrir KA/Þór, fjögur mörk hvor en Matea Lonac var besti maður liðsins í leiknum. Hún varði 15 skot – 34% þeirra skota sem komu á markið. KA/Þór er eftir sem áður í fimmta sæti með 12 stig að 16 leikjum loknum. Liðið hefur 12 stig, jafn mörg og Haukar sem hafa lokið 17 leikjum.

Sex efstu liðin komast í úrslitakeppnina.

Stelpurnar okkar eiga þessa leiki eftir í deildinni:

  • KA/Þór – Selfoss
  • HK – KA/Þór
  • ÍBV – KA/Þór
  • KA/Þór – Fram
  • Valur – KA/Þór