Þór
Kvennalið SA steinlá í fyrsta úrslitaleiknum
11.03.2025 kl. 23:00

Úr leik SA og Fjölnis fyrr í vetur. Liðin mætast í Skautahöllinni á Akureyri á fimmtudagskvöldið. Mynd: Rakel Hinriksdóttir
Lið Skautafélags Akureyrar steinlá í kvöld fyrir Fjölni í fyrsta úrslitaleik Íslandsmóts kvenna í íshokkí. Liðin mættust í Egilshöll í Reykjavík og Fjölnir vann 5:0.
Kolbrún Garðarsdóttir og Hilma Bergsdóttir skoruðu í fyrstu lotu, Berglind Leifsdóttir gerði eina markið í annarri lotu og í þeirri þriðju síðustu gerði Berglind annað mark sitt og Flosrún Jóhannesdóttir gerði fimmta markið.
Annar leikur liðanna fer fram í Skautahöllinni á Akureyri á fimmtudagskvöld.
- Fjölnir - SA 5-0 (2-0, 1-0, 2-0)
Leikskýrslan
Leikurinn í kvöld var í beinu streymi á YouTube-rás ÍHÍ. Upptöku af leiknum má sjá í spilaranum hér að neðan með því að smella á myndina.