KR fyrsti gestur í Bestu-veislu KA

Loksins! Langþráð stund rennur upp kl. 16.15 í dag þegar flautað verður til fyrsta leiks KA-manna á Íslandsmótinu í knattspyrnu. Þar með hefst alvaran og spennandi verður að sjá hvernig KA-menn og aðrir leikmenn Bestu deildarinnar koma undan lengsta undirbúningstímabili í heimi.
Það eru KR-ingar sem koma í heimsókn á Greifavöllinn í dag. Liðin mættust þrisvar í deildinni í fyrrasumar. Jafntefli verð í báðum leikjum hinnar hefðbundnu deildarkeppni, 1:1 á Greifavelli KA og 2:2 á Meistaravöllum KR-inga en þegar liðin mættust í neðri hlutanum á lokasprettinum unnu KR-ingar öruggan sigur, 4:0. KA-menn eiga því aldeilis harma að hefna.
Færeyski landsliðsmaðurinn Jóan Símun Edmundsson sem lék með KA síðari hluta sumars 2023 er kominn aftur og verður mikill liðsstyrkur. Mjög góður leikmaður þar á ferð.
Nokkrar breytingar hafa orðið á leikmannahópi KA síðan í fyrra, mjög öflugir leikmenn eru horfnir á braut og fróðlegt verður að sjá hvernig þeir sem komnir eru í staðinn standa sig. KA-mönnum er ekki spáð sérlega góðu gengi; í árlegri spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna liðanna í Bestu deild er þeim spáð áttunda sæti og bæði fotbolti.net og Morgunblaðið spá KA-liðinu níunda sæti.
Viðar Örn Kjartansson var lengi í gang í fyrra eftir að hann kom til KA en hafði gert sex mörk í deildinni þegar upp var staðið. Mikilvægt verður fyrir KA að hann standi sig vel í sumar.
„Við reynum alltaf að gera aðeins betur en í fyrra. En tímabilið í fyrra var ekki það slæmt. Við erum ríkjandi bikarmeistarar og ég held að fóturinn verði ekkert tekinn af bensíngjöfinni í bikarkeppninni núna í ár, ekkert frekar en síðustu ár,“ sagði Ívar Örn við mbl.is. Við viljum festa okkur í sessi í því að vera ákveðið bikarlið. Sömuleiðis er það að gera vel í Evrópu. Við erum að fara í þrjár keppnir í ár og það tekur mikla orku.“
Spurður af mbl.is hvort hann teldi að lið kæmu til með að vanmeta KA vegna brösuglegs gengis í vetur sagði Ívar Örn:
Komnir
- Jóan Símun Edmundsson frá N-Makedóníu
- Jonathan Rasheed frá Svíþjóð (meiddst og verður frá út tímabilið)
- William Tönning frá Svíþjóð
- Guðjón Ernir Hrafnkelsson frá ÍBV
- Ingimar Torbjörnsson Stöle frá FH (var þar í láni frá KA)
- Bjarki Fannar Helgason keyptur frá Hetti/Hugin (var lánaður til baka og leikur fyrir austan í sumar)
Farnir
- Daníel Hafsteinsson í Víking
- Sveinn Margeir Hauksson í Víking
- Elfar Árni Aðalsteinsson í Völsung
- Harley Willard á Selfoss
- Kristijan Jajalo til Austurríkis
- Darko Bulatovic til Svartfjallalands
Sveinn Margeir Hauksson, til vinstri, og Daníel Hafsteinsson eru horfnir á braut; báðir sömdu við Víking og Daníel hefur verið öflugur þar á bæ á undirbúningstímabilinu. Sveinn Margeir stundar háskólanám í Los Angeles í Bandaríkjunum og leikur með liði skólans, en óvíst er hvort og þá hvenær hann kemur til liðs við Víkinga.
Hvað sem öllum spám líður hlakka KA-menn að sjálfsögðu til sumarsins, jafnt leikmenn, þjálfarar, stjórnarmenn og stuðningsmenn. Ástæða er til að hvetja alla gula og bláa til að fjölmenna á völlinn í sumar og hvetja KA-strákana til dáða. Af nógu verður að taka í deild og bikarkeppninni auk þess sem liðið tekur þátt í Evrópukeppni á nýjan leik.