Þór
Kimberley Dóra og Iðunn Rán til Írlands
Kimberley Dóra og Iðunn Rán. Mynd af vef Þórs/KA.
Iðunn Rán Gunnarsdóttir og Kimberley Dóra, leikmenn Þórs/KA, hafa verið valdar í landsliðshóp 17 ára og yngri í knattspyrnu fyrir keppni í milliriðli undankeppni Evrópumótsins í sumar. Ísland leikur við Finnland, Írland og Slóvakíu og fara allir leikirnir fram á Írlandi 23. til 29. mars. Efsta lið riðilsins kemst beint í lokakeppni EM sem verður í Bosníu-Hersegóvínu í maí.
Smellið hér til að sjá allan leikmannahópinn.