Þór
Íslandsmeisturum KA/Þórs spáð 3. sæti
16.09.2021 kl. 08:05
Martha Hermannsdóttir, fyrirliði KA/Þórs, hampar Íslandsbikarnum eftir glæsilegan sigur á Val í úrslitarimmunni í vor. Ljósmynd: Sara Skaptadóttir.
Niðurstaða úr árlegum samkvæmisleik forráðamanna og fyrirliða handboltaliða Íslands var kunngjörð í gær; hverju þeir spá um röð liða deildanna þegar upp verður staðið í vor.
Íslandsmeisturunum, Stelpunum okkar í KA/Þór, er spáð þriðja sæti í Olís deild Íslandsmóts, en spámennirnir eru á því að Fram og Valur berjist hatrammlega um efsta sætið. Niðurstaðan er sú sama í spá sem handboltavefur Íslands, handbolti.is, stóð fyrir.
Spá fyrirliða og forráðamanna liðanna í Olís deild kvenna er þessi:
Fram 127 stig
Valur 126 stig
KA/Þór 118 stig
Stjarnan 99 stig
ÍBV 82 stig
HK 50 stig
Haukar 47 stig
Afturelding 23 stig
- Fyrsta umferð Olís deildar kvenna verður um helgina. Íslandsmeistararnir fá þá ÍBV í heimsókn í KA-heimilið á laugardaginn. Leikurinn hefst klukkan 14.00.
Fjölbreytt umfjöllun um handbolta hér, á handbolti.is.