Sveitarstjórnarmál
Sex verða í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
07.03.2022 kl. 08:45
Sex gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Þetta kemur fram á vefriti fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri, islendingur.is.
Frambjóðendur eru, í stafrófsröð:
- Heimir Örn Árnason, deildarstjóri
- Hildur Brynjarsdóttir, þjónustufulltrúi
- Ketill Sigurður Jóelsson, verkefnastjóri
- Lára Halldóra Eiríksdóttir, námsráðgjafi og varabæjarfulltrúi
- Þórhallur Harðarson, fjármálastjóri og varabæjarfulltrúi
- Þórhallur Jónsson, bæjarfulltrúi
Prófkjörið fer fram laugardaginn 26. mars og kosið verður um fjögur efstu sæti framboðslistans. Þátttaka er heimil öllum flokksbundnum sjálfstæðismönnum í sveitarfélaginu og þeim sem ganga í Sjálfstæðisflokkinn fyrir lok kjörfundar.