Sveitarstjórnarmál
Níu bjóða sig fram í forvali VG á Akureyri
09.02.2022 kl. 12:05
Níu verða í framboði í rafrænu forvali Vinstri grænna á Akureyri sem fer fram dagana 2. til 5. mars nk. Í forvalinu verður kosið í efstu sex sætin á framboðslista VG bæjarstjórnar Akureyrarbæjar, en niðurstöður fyrir efstu þrjú sætin eru bindandi.
Eftirfarandi framboð bárust:
- Ásrún Ýr Gestsdóttir, háskólanemi, í 1. sæti
- Einar Gauti Helgason, matreiðslumeistari, í 3. sæti
- Herdís Júlía Júlíusdóttir, iðjuþjálfi, í 6. sæti
- Hermann Arason, framkvæmdastjóri, í 2.-4. sæti
- Inga Elísabet Vésteinsdóttir, landfræðingur, í 6. sæti
- Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, varabæjarfulltrúi, í 1. sæti
- Ólafur Kjartansson, vélvirki og fyrrv. framhaldskólakennari, í 2. sæti
- Sif Jóhannesar Ástudóttir, verkefnastjóri, í 2.-6. sæti
- Sóley Björk Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi, 4.-6. Sæti