Sveitarstjórnarmál
Kosið utan kjörfundar á Akureyri
06.05.2022 kl. 12:00
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar er á Glerártorgi, á milli verslana Nettó og Lindex. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson
Sveitarstjórnarkosningar fara fram á laugardegi eftir rúma viku, 14. maí. Hægt er að kjósa utan kjörfundar sem hér segir:
Akureyri – Glerártorgi, alla virka daga kl. 10:00 - 18:30. Um helgar er opið kl. 11:00 - 15:00. Á kjördag er opið kl. 10:00 - 17:00.
Hrísey – Skrifstofu Akureyrarbæjar í Hrísey, þriðjudaga og fimmtudaga, kl. 8:30- 11:30.
Grímsey – Skrifstofu kjörstjóra, Magnúsar Þórs Bjarnasonar, skv. samkomulagi.