Formlegar viðræður hafnar á Akureyri
Bæjarfulltrúar flokkanna þriggja sem fengu mest fylgi í bæjarstjórnarkosningunum á Akureyri á laugardaginn hittust á fyrsta formlega fundinum undir kvöld.
L-listi, Bæjarlisti Akureyrar, fékk þrjá bæjarfulltrúa, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur tvo hvor, og ákveðið var í gær, á óformlegum fundi, að hefja viðræður um myndun meirihluta í bæjarstjórn. Flokkarnir hafa sjö af 11 bæjarfulltrúum.
Viðræðurnar eru á algjörum byrjunarreit eins og gefur að skilja. Á fundinn mættu allir bæjarfulltrúarnir sjö. Frá vinstri: Heimir Örn Árnason, oddviti sjálfstæðismanna, Lára Halldóra Eiríksdóttir, Sjálfstæðisflokki, Elma Eysteinsdóttir, L-lista, Gunnar Líndal Sigurðsson, oddviti L-listans, Halla Björk Reynisdóttir, L-lista, Gunnar Már Gunnarsson, Framsókn og Sunna Hlín Jóhannesdóttir, oddviti Framsóknar.