Bæta skal umgengni og þrifnað utanhúss
Bæjarstjórn Akureyrar ætlar að leggja áherslu á að bæta umgengni og þrifnað utanhúss í bæjarlandinu. Bókun þess efnis var samþykkt á fundi bæjarstjórnar í gær í kjölfar þess að rætt var um nýsamþykkta umhverfis- og loftslagsstefnu sveitarfélagsins og umgengni á lóðum, að ósk Sunnu Hlínar Jóhannesdóttur, Framsóknarflokki.
- Að neðan eru nokkrar myndir víðs vegar úr bæjarlandinu sem Akureyri.net hefur fengið sendar og tengjast þessari umfjöllun.
Sunna Hlín gerði nýja umhverfis- og loftlagsstefnu Akureyrarbæjar að umræðunefni. Stefnan var samþykkt í bæjarstjórn 12. maí en Sunna benti á að þar væri ekkert kveðið á um umgengni og þrifnað utanhúss nema þessi örstutta málsgrein: „Til að bæta nærumhverfi íbúa er mikilvægt að reglulega fari fram hreinsunarátak í bænum“
Hún sagði ástandið í bænum þess eðlis að ófullnægjandi væri að tala um reglulegt hreinsunarátak. „Það er ástæða þess að ég óskaði eftir því að taka þetta mál upp hér í dag. Við þurfum að breyta umgengninni til framtíðar og koma upp verkferlum til þess. Ég lagði til á vinnufundi bæjarstjórnar og umhverfis- og mannvirkjasviðs um stefnuna að bætt yrði við sjötta kaflanum er tæki á umgengni og þrifnaði utanhús en því miður fékk það ekki hljómgrunn“
Svo fór að lögð var fram eftirfarandi bókun sem samþykkt var samhljóða:
„Bæjarstjórn felur Umhverfis og mannvirkjasviði að bæta við kafla/áherslum um umgengni og þrifnað utanhúss í umhverfis- og loftlagsstefnu Akureyrarbæjar og leggja hana að nýju fyrir bæjarstjórn. Í framhaldi verði verkefninu komið fyrir í aðgerðaáætlun stefnunnar. Bæjarstjórn áréttar bókun frá umhverfis- og mannvirkjaráði frá 11. febrúar síðastliðnum þar sem ráðið óskaði eftir því að upplýsinga væri aflað um heimildir og ábyrgðarskiptingu milli umhverfis- og mannvirkjasviðs, þjónustu- og skipulagssviðs og heilbrigðiseftirlitsins og felur nýju umhverfis -og mannvirkjaráð sem og nýju skipulagsráði að fylgja málinu eftir.“
Smellið hér til að lesa ræðu Sunnu Hlínar á fundi bæjarstjórnar í gær.