Mjólk og ávextir ekki hluti af fríum máltíðum
Ávaxta- og mjólkuráskrift í grunnskólum Akureyrarbæjar verða ekki hluti af fríum skólamáltíðum, samkvæmt ákvörðun bæjarráðs frá því í morgun um lækkanir á gjaldskrám. Spurt var fyrir nokkrum dögum hvort fríar skólamáltíðir tækju aðeins til hádegisverðar eða allra máltíða í skólanum og þá meðal annars vísað til ávaxta- og mjólkuráskrifta. Svarið liggur fyrir.
Annaráskrift fyrir máltíðir lækkar um 100% – verður sem sagt ókeypis – en ávaxta- og mjólkuráskriftir lækkar um 5%. Ávaxtaáskrift mun kosta 2.089 krónur og mjólkuráskriftin 923 krónur á mánuði frá 1. september. Hvort tveggja hækkaði um 9% frá áramótum og mun lækka um 5% frá 1. september. Sama á við um frístund í skólanum, skólamáltíðir í lengri viðveru og síðdegishressing lækka um 5% samkvæmt þessari ákvörðun og eru því ekki skilgreindar sem hluti af fríum skólamáltíðum. Lækkanir á hinum ýmsu liðum eru 1-5 prósent, í flestum tilvikum fimm prósent.
Grunnskólar bæjarins voru settir í dag og hefst kennsla á morgun samkvæmt stundaskrám.
Lækkanir taka gildi 1. september
Bæjarráð samþykkti í morgun breytingar á gjaldskrá Akureyrarbæjar með gildistíma frá og með 1. september. Bæjarráð fjallaði um gjaldskráamálið á fundi sínum fyrir viku að áeggjan bæjarfulltrúanna Hildu Jönu Gísladóttur (S) og Sunnu Hlínar Jóhannesdóttur (B), meðal annars eftir að þær birtu grein á Akureyri.net með áskorun til bæjaryfirvalda.
- Endurskoða gjaldskrár fyrir 1. september | akureyri.net
- Segja gjaldskrár hafa verið í endurskoðun | akureyri.net
- Skólamáltíðir: gjaldtaka um 40% af kostnaði | akureyri.net
- Annaráskrift á mánuði
2023: 10.388 kr.
2024: 11.323 kr. - hækkaði um 9% frá áramótum
2024: 0 - lækkar um 100% frá 1. september - Ávaxtaáskrift á mánuði:
2023: 2.018 kr.
2024: 2.199 kr. - hækkaði um 9% frá áramótum
2024: 2.089 kr. - lækkar um 5% frá 1. september - Mjólkuráskrift á mánuði:
2023: 892 kr.
2024: 973 kr. - hækkaði um 9% frá áramótum
2024: 923 kr. - lækkar um 5% frá 1. september
Lækkað um 5% í flestum tilvikum
Lækkanir sem koma til framkvæmda 1. september eru mismunandi eftir stöðum, en ákvörðun bæjarráðs tekur til eftirtalinna gjaldskráa, samanber einnig skjáskot af lista yfir gjaldskrárlækkanir hjá einstökum stofnunum hér neðst í fréttinni.
- Sundlaugar Akureyrarbæjar
- Félagsleg heimaþjónusta
- Laut, athvarf fyrir geðfatlað fólk
- Skammtíma þjónusta fyrir fatlað fólk
- Leikskólar
- Mötuneyti grunnskólanna
- Frístund í grunnskólunum
- Tónlistarskólinn á Akureyri