„Hrikalegt bakslag fyrir byggð í Grímsey“
Útgerðarmönnum í Grímsey var tilkynnt í gær að þeir muni ekki lengur fá undanþágu frá þeirri kröfu að fiskur sem veiddur er skv. sértækum byggðakvóta verði unninn í eyjunni. Ekki hefur þótt svara kostnaði að koma á fót fiskvinnslu í Grímsey heldur er afli útgerða þar unninn annars staðar. Fjórar fjölskyldur auglýstu hús sín til sölu strax í gær skv. frétt mbl.is í dag.
Grímsey hefur verið hluti Akureyrarkaupstaðar í hálfan annan áratug. Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, sagðist í samtali við Akureyri.net í kvöld telja að þingmenn kjördæmisins geri sér grein fyrir alvarleika málsins og vonast til þess að farsæl lausn finnist sem verði til þess að byggð haldist áfram í eyjunni. Hún og Halla Björk Reynisdóttir, forseti bæjarstjórnar, funda um málið á morgun með matvælaráðherra, Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur, sem einmitt er þingmaður Norðausturkjördæmis.
Byggðin enn brothætt
„Upplausnarástand í eyjunni“ og „hrikalegt bakslag fyrir byggð í Grímsey,“ sagði Ingibjörg Isaksen, þinglokksformaður Framsóknar og fyrsti þingmaður Norðausturkjördæmis á Alþingi í dag, að því er segir í frétt mbl.is, í kjölfar ákvörðunar matvælaráðuneytisins og Byggðastofnunar um að ekki standi til að vera með frekari undanþágur frá vinnsluskyldu vegna úthlutunar á sértækum byggðakvóta til Grímseyjar.
„Þessi ákvörðun vekur furðu þar sem hún er hrikalegt bakslag,“ sagði Ingibjörg Isaksen og bætti við að þrátt fyrir að Grímsey væri ekki lengur þátttakandi í verkefni Byggðastofnunar um brothættar byggðir þá væri byggðin enn brothætt.
Fréttir mbl.is um málið í dag: