Fara í efni
Samherji

Björgvin EA seldur og var kvaddur í vikunni

Leifur Björnsson og Hartmann Kristjánsson sáu um að sleppa, en þeir voru báðir í áhöfn Björgvins EA í liðlega tuttugu ár. Myndir: samherji.is og Þorgeir Baldursson

Ísfisktogari Samherja, Björgvin EA 311, lagði af stað frá Dalvík til Vigo á Spáni um miðjan fimmtudag og kvöddu margir bæjarbúar þetta fengsæla skip og fylgdust með þegar landfestum var sleppt í síðasta sinn, í heimahöfn skipsins.

Nokkrir í áhöfn Björgvins EA taka þátt í siglingunni til Vigo, ásamt tveimur Spánverjum. Skipstjóri á siglingunni er Björn Már Björnsson og fyrsti stýrimaður er Brynjólfur Oddsson.

Félagarnir Leifur Björnsson og Hartmann Kristjánsson sáu um að sleppa, en þeir voru báðir í áhöfn Björgvins EA í liðlega tuttugu ár.

Björgvin EA var elsta skipið í flota Samherja, smíðað í Noregi árið 1988 og hefur alla tíð reynst mjög vel, að því er segir á vef fyrirtækisins. Þar segir að áhöfnin hafi umgengist skipið á sérstaklega vandaðan hátt og viðhald hafi alla tíð verið með ágætum.

Meðfylgjandi eru myndir sem teknar voru í blíðunni á fimmtudaginn.

Kristján Vilhelmsson framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja og Björn Már Björnsson skipstjóri.

Verðlaunagripir sem áhöfn Björgvins hafði unnið verða geymdir á góðum stað í framtíðinni. Jóhannes Árnason og Björn Már Björnsson sáu til þess.

Kaldbakur EA fylgdi Björgvin EA út Eyjafjörð.  Hér eru skipin við Hrólfssker.

 

Björgvin EA og vinnsluhús Samherja á Dalvík.