Fara í efni
Óveður

Ekkert ferðaveður – gangið frá lausamunum

Skjáskot af vef Veðurstofu Íslands.
Mjög slæmu veðri er spáð á Norðausturlandi í fyrramálið og hefur Veðurstofa Íslands gefið út appelsínugula viðvörun fyrir landshlutann.
 
Um er að ræða tímann frá klukkan 7.00 til kl. 12.30 í hádeginu á morgun.
 
Veðurstofan segir:
 
  • Sunnan 20 til 28 metrar á sekúndu
  • Vindhviður allvíða yfir 35 metra á sekúndu
  • Fólk er hvatt til að ganga frá lausamunum
  • Ekkert ferðaveður

Vondu veðri er raunar spáð um nánast allt land í fyrramálið en að það verði verst á Norðausturlandi.

  • Hægt er að fylgjast með veðrinu á forsíðu Akureyri.net þar sem tengill er á vef Bliku