Fara í efni
Niceair

Helgarferðir til Berlínar og Edinborgar

Niceair tilkynnti í morgun að það félagið bjóði upp á 3ja nátta borgarferðir frá Akureyrar til Edinborgar og Berlínar í haust. Tvær ferðir verða til hvorrar borgar, flogið út á fimmtudegi í öll skiptin og heim á sunnudegi.

  • Edinborg – flogið út 20. október og 17. nóvember
  • Berlín – flogið út 10. nóvember og 1. desember 

„Berlín er rík af sögu, fjölbreytileika og menningu. Mikið úrval er af verslunum og veitingastöðum frá öllum heimshornum og því ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi,“ segir í tilkynningu frá Niceair.

Þar segir einnig: „Edinborg er ævintýraleg borg sem gaman er að dveljast í. Stutt flug, einstaklega fallegur arkitektúr, skemmtilegir markaðir og frábærar verslunargötur þar sem hægt er að gera góð kaup.“

„Jólamarkaðirnir í Berlín og Edinborg gefa einstaklega upplifun og koma þér svo sannarlega í jólaskap.“

Vefur Niceair