FFÍ og ASÍ lýsa ánægju með samning við Niceair
Kjarasamningur Flugfreyjufélags Íslands (FFÍ) og Niceair var undirritaður og samþykktur í dag. Formaður FFÍ lýsir yfir mikilli ánægju með samninginn og forseti ASÍ segir það góða tilfinningu að geta mælt með nýju flugfélagi við viðskiptavini, fjárfesta og starfsfólk.
Eftirfarandi tilkynning birtist á vef ASÍ í dag:
„Flugvél hins nýja flugfélags Niceair kom til Akureyrar í gær en lagt verður upp í jómfrúarferð félagsins á fimmtudag. Síðustu vikur hafa viðræður verið í gangi á milli hins nýja flugfélags og Flugfreyjufélags Íslands um kjarasamning vegna flugfreyja og flugþjóna og í dag var nýr kjarasamningur undirritaður og samþykktur. Eins og áður hefur verið fjallað um eru ekki algildir kjarasamningar um störf flugfreyja og flugþjóna hér á landi og því þarf að semja við hvert flugfélag fyrir sig. Það er einstaklega ánægjulegt að hið nýja flugfélag leggi metnað í að ganga frá kjarasamningum og verja þannig réttindi og kjör síns starfsfólks. Með því móti er líklegra að hæft og gott starfsfólk fáist til starfa til lengri tíma og haldnar eru í heiðri vinnureglur á íslenskum vinnumarkaði.“
Guðlaug Líney Jóhannsdóttir formaður FFÍ segir: „Það er með gleði og bjartsýni sem við hjá FFÍ óskum Niceair til hamingju með að hafa tekið á loft. FFÍ fagnar því að Niceair hafi gengið til viðræðna og lokið kjarasamningi við félagið með árangursríkum hætti og bjóðum við nýja félagsmenn hjartanlega velkomna. Viðræðuferlið hefur í alla staði verið farsælt og gott og hlökkum við til áframhaldandi samstarfs.“
Drífa Snædal forseti ASÍ segir: „Ég vil óska nýju flugfélagi til hamingju með heilladrjúg fyrstu skref og óska þeim velfarnaðar í framtíðinni. Það er ljóst að það á ekki að tjalda til einnar nætur og það er góð tilfinning að geta mælt með nýju flugfélagi við viðskiptavini, fjárfesta og starfsfólk.“