Niceair
Elfar Árni í Völsung eftir 13 ára fjarveru
28.11.2024 kl. 10:30
Elfar Árni í síðasta heimaleiknum með KA, gegn Vestra 10. október. Hann var fyrirliði liðsins og gerði bæði mörkin í 2:1 sigri. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Knattspyrnumaðurinn Elfar Árni Aðalsteinsson er genginn til liðs við uppeldisfélag sitt, Völsung á Húsavík, eftir 13 ára fjarveru. Elfar, sem er 34 ára, hefur leikið með KA síðan 2015 og gert 73 mörk í deildar- og bikarleikjum fyrir Akureyrarfélagið, þar af 45 í efstu deild.
Elfar Árni hóf meistaraflokksferilinn með Völsungi. Hann lék síðast með liðinu 2011 og var síðan í þrjú ár með Breiðabliki í Kópavogi áður en leiðin lá til KA. Hann er næstmarkahæsti KA-maðurinn í efstu deild og sá þriðji leikjahæsti á þeim vettvangi. Hallgrímur Mar Steingrímsson er bæði leikja- og markahæstur í sögu KA í efstu deild með 182 leiki og 62 mörk.
Lið Völsungs vann sér í haust sæti í Lengjudeildinni, næst efstu deild Íslandsmótsins, á sumri komanda.
FYRSTA KA-MARKIÐ Í „ALVÖRU“ LEIK
Elfar Árni skoraði í fyrsta „alvöru“ leiknum með KA, í fyrstu umferð næst efstu deildar Íslandsmótsins laugardaginn 9. maí 2015. Fram kom þá í heimsókn og liðin gerðu 3:3 jafntefli í næstu efstu deild. Juraj Grizelj þrumaði á markið úr aukaspyrnu á 35. mín. og Elfar Árni sló markvörðinn út af laginu með því að breyta stefnu boltans með glæsilegri hælspyrnu – tilþrifin má sjá á myndinni að ofan. Mynd: Skapti Hallgrímsson