Stórkostlegt ferðalag LMA og Dórótheu

„Ég er eiginlega ennþá orðlaus yfir gæðum þessarar sýningar, svo það sé sagt strax og ekki skafið af því. Hæfileikum unga fólksins sem tók þátt í þessu eru sennilega engin takmörk sett.“
Þetta segir Rakel Hinriksdóttir, blaðamaður Akureyri.net, í pistli um uppsetningu Leikfélags Menntaskólans á Akureyri (LMA) á Galdrakarlinum í Oz
„Tónlist, leikur, söngur, dans, sviðsmynd, búningar og öll umgjörð upp á tíu. Það eru um það bil 90 krakkar sem koma að sýningunni á einn eða annan hátt, og hvergi er laus endi. Lítil sinfóníuhljómsveit skipuð nemendum spilar alla tónlist og það voru nemendur sem útsettu tónlistina, sem var alveg frábær og hreif mig og syni mína lóðbeint til Oz og skilaði okkur ekki aftur fyrr en tjaldið var dregið fyrir. “
Pistill Rakelar: Stórkostlegt ferðalag LMA og Dórótheu í Hofi