Fara í efni
MA – VMA

„Atvinnulífið“ mótmælir – vill fund með ráðherra

Ýmsir aðilar úr atvinnulífinu á Akureyri mótmæla fyrirhugaðri sameiningu Menntaskólans á Akureyri og Verkmenntaskólans á Akureyri og óska eftir fundi með Ásmundi Einari Daðasyni, mennta- og barnamálaráðherra, til þess að fara vandlega yfir hans rök og þeirra sem standa að yfirlýsingunni.

Í yfirlýsingunni segir að það sé áhyggjuefni að „stjórnvald gangi til verka í þessum efnum með þeim hætti að gera fyrirfram hvorki greiningu á kostum og göllum sameiningarinnar, né á þörfum atvinnulífsins í landshlutanum og hafi heldur ekki haft samráð við helstu hagsmunaaðila á svæðinu um fyrirhugaðar breytingar. Fyllsta ástæða er til að ætla að þær breytingar valdi framhaldsskólastiginu á Akureyri varanlegum skaða.“

Yfirlýsingin er svohljóðandi:

Með skynsamlegum ákvörðunum stjórnvalda hvers tíma, dugnaði og stórhug Akureyringa hefur bærinn öðlast sess sem mikilvægasti skólabær landsbyggðarinnar.

Menntaskólinn á Akureyri og Verkmenntaskólinn á Akureyri njóta báðir viðurkenningar og virðingar nemenda og bæjarbúa. Þeir svara um margt ólíkum en mikilvægum kröfum nemenda, samfélags og atvinnulífs á Akureyri og um þá fjölbreytni og samkeppni milli skólanna hefur ríkt víðtæk sátt. Óskiljanlegt er að Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra vilji nú rjúfa þá sátt með sameiningu skólanna og fullyrði fortakslaust með hliðsjón af niðurstöðu stýrihóps í hans ráðuneyti, „að með sameiningu þessara framhaldsskóla verði til mun öflugri stofnun til að mæta þeim áskorunum sem skólasamfélagið stendur frammi fyrir á komandi árum og vinna að þeim markmiðum sem sett hafa verið fram í menntastefnu.“

Telji ráðherrann að samlegðaráhrif fjárhagsleg og fagleg myndu nást með sameiningunni hefði verið eðlilegra að byrja á að láta reyna á þá samlegð með auknu samstarfi skólanna og með skýrum markmiðum sem tækju mið af þeim áskorunum framtíðar sem ráðherra telur sig greina.

Það er áhyggjuefni að stjórnvald gangi til verka í þessum efnum með þeim hætti að gera fyrirfram hvorki greiningu á kostum og göllum sameiningarinnar, né á þörfum atvinnulífsins í landshlutanum og hafi heldur ekki haft samráð við helstu hagsmunaaðila á svæðinu um fyrirhugaðar breytingar. Fyllsta ástæða er til að ætla að þær breytingar valdi framhaldsskólastiginu á Akureyri varanlegum skaða. Óskum við hér með eftir fundi með ráðherra til þess að fara vandlega yfir hans rök og okkar.

Ak-inn

Bautinn Akureyri

Ferro Zink

Finnur verktaki og vélaleiga

Húsheild/Hyrna

Höldur - Bílaleiga Akureyrar

Íslensk verðbréf

Kaldbakur

Kjarnafæði Norðlenska

Kælismiðjan Frost

Leirunesti

Malbikun Norðurlands

N Hansen

Norlandair

Rafeyri

Raftákn

Rub23

Samherji

Sigurgeir Svavarsson verktaki

Skógarböðin

Slippurinn Akureyri

SS Byggir

T-Plús

Vélfag

Veitingahúsið Greifinn