Fara í efni
Lesia Moskalenko – Úkraína

TAKK! Þrjú ár að baki en ævintýrið nýhafið

Þrjú ár eru í dag síðan útgáfufélagið Eigin herra endurreisti Akureyri.net og það eru sannarlega engar ýkjur að fjölmiðillinn hafi vaxað og dafnað.

Undirritaður hélt af stað út í óvissuna föstudaginn 13. nóvember 2020 og það var aldeilis enginn óhappadagur.

Lestur Akureyri.net hefur aukist gríðarlega undanfarið. Í nýliðnum októbermánuði gátum við fagnað bæði stærsta degi frá upphafi og því að aldrei hafa fleiri einstakir gestir farið inn á vefinn.

  • Vefurinn var heimsóttur í 33.898 skipti dag einn í október. Heimsóknir hafa aldrei verið fleiri á einum og sama deginum.
  • Einstakir gestir (IP tölur) í október voru 85.142 hver sími telst ein IP tala og hver tölva önnur. Margir eiga því tvær IP tölur. Hver IP tala er aðeins talin einu sinni, sama hve viðkomandi fer oft inn á vefinn í mánuði þannig að 85.142 einstakir gestir er ótrúlegur fjöldi. Rétt er að minna á Akureyringar eru 20.000 svo ekki þarf að velkjast í vafa um að Akureyri.net á sér marga dygga lesendur annars staðar en við Eyjafjörð. 

Ýmsar nýjungar verða kynntar í tilefni afmælisins.

  • Í morgun birtist fyrsti pistill Sigmundar Ernis Rúnarssonar, þess akureyrska eðal penna; fjölmiðlamanns og rithöfundar til áratuga. Á hverjum mánudagsmorgni næstu misseri verður birtur pistill Sigmundar Ernis þar sem hann rifjar upp æskuárin í heimabænum á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar. Hér er fyrsti pistillinn.
  • Fyrir helgi birtist á forsíðu Akureyri.net tengill á Bliku, þann frábæra veðurvef Einars Sveinbjörnssonar, þar sem með einum smelli er hægt að kynna sér veður augnabliksins og veðurspá, fyrir Akureyri, Öxnadalsheiði, Ljósavatnsskarð og Dalvík. Sem sagt; ekki er lengur nauðsyn að bregða sér út á stétt í því skyni að gá til veðurs og ferðalangar halda ekki út í óvissuna, sama hvert ferðinni er heitið.

Meira um nýjungar á Akureyri.net síðar í dag.

Akureyri.net fór fyrst í loftið 26. júlí árið 2005, fyrir rúmum 18 árum, þegar Þórhallur Jónsson kaupmaður í Pedromyndum hleypti vefnum af stokkunum. Þórhallur stóð vaktina um árabil ásamt góðu fólki en vefurinn hafði legið í dvala um hríð þegar undirritaður ákvað að taka slaginn á ný eftir tveggja ára hlé frá daglegri blaðamennsku.

Ljóst var frá fyrsta degi að Akureyringar og aðrir áhugamenn um höfuðstað Norðurlands kunnu vel að meta framtakið. Viðtökur voru strax frábærar – bæði fann ég fyrir miklu þakklæti og vefurinn var mikið lesinn. Fjölmiðill sem einblínir með fjölbreyttum hætti á nærumhverfið, og fylgist með því sem Akureyringar eru að sýsla annars staðar, er augljóslega afar mikilvægur.

MÖRG ÞÚSUND ÞAKKIR!

Skapti Hallgrímsson,
ritstjóri Akureyri.net